hvað er málið

hvað er málið

hvað er málið haus 1

1. september 2010 · Engin ummæli

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

af hverju ekki

31. ágúst 2010 · Engin ummæli

Af hverju mætir fólk ekki til mótmæla.Er það vegna þess að engu þarf að mótmæla.Skjaldborgin var slegin utan um okkur en ekki fjármálafyrirtæki.Aflaheimildirnar komnar í þann farveg sem okkur var lofað,auðlindirnar okkar öruggar í okkar höndum……………..         Nei við verðum að leita annarra skýringa.Mótmælin hafa skilað okkur vanhæfri ríkisstjórn frá og annarri ríkisstjórn að.Hún reyndar sýnir sig ekki hæfa heldur,en ekki viljum við bylta henni frá til að koma vanhæfu stjórninni að aftur.Styrkþiggjandi þingmenn eru hvattir til að stíga niður og aðrir styrkþiggjandi þingmenn koma í staðinn.Hæstaréttardómar eru kveðnir til að fjármálafyrirtækin geti einhliða breytt vaxtakjörum,og hver veit nema þinn vinnuveitandi komi að þér við mótmælin eða þá þjónustufulltrúinn þinn úr bankanum sem þú ert að reyna að semja þig frá gjaldþroti við.Og ekki gleyma því að 9 manns voru handvaldir úr hópi mótmælenda til að draga í gegnum fyrstu réttarhöldin eftir hrun.

Nýlega réðust níu lögreglubílar með 30-40 lögreglumönnum til að reka hóp manna úr sumarbústaði sem einn þessarri manni er eigandi að skvt. erfðalögum. Viðbúnaðurinn var skýrður með því að kærð var íkveikja.Þrátt fyrir það var ENGINN þessarra lögreglumanna með slökkvutæki með sér heldur allir vopnaðir kylfum.Maður spyr sig hvaða elda átti að kæfa með þeim.Einn slökkvibíll var kallaður til.Erfitt er að gera sér í hugarlund skýringar á þessu,nema hvað þessir menn eru í hópi”mótmælenda” og einn þeirra reyndar einn af þeim 9 sem á að draga fyrir rétt öðrum mótmælendum í nútíð og framtíð til viðvörunar.

Í stað þess að spyrja,af hverju fólk mæti ekki ætti maður kannski að spyrja,af hverju ætti einhver að mæta.Við erum þrælar í okkar eigin landi,þrælar okkar viðskiftabanka,vinnuveitanda og nú eru að koma til lög sem gefa lögreglu RÝMRI heimildir til handtöku.Þetta er að sjálfsögðu ekkert vandamál því eftir tvö og hálft ár fáum við að kjósa til alþingis aftur og öll vitum við skvt fenginni reynslu að það breytir öllu eða hvað

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

pallablogg

31. ágúst 2010 · 1 ummæli

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

31. ágúst 2010 · 1 ummæli

Góðan daginn kæra veröld.

Vegna þrýstings kunnugra hef ég nú ákveðið að stinga niður penna á þessum vettfangi.Þessi síða mun vera ætluð réttlætisbaráttu og er af nógu að taka í okkar þjóðfélagi.Þing verður sett núna í vikunni með flestum þeim persónum og leikendum sem afrekuðu það að koma þjóðarskútunni á hliðina.Orðin ábyrgð og afsögn,þekkjast ekki í stjórnsýslunni og siðleysingjar sitja í því skjóli að fólk nennir ekki upp úr sófum að krefjast breytt siðferðis.Allar opinberar stofnanir kirkja,lögregla………….eru undir áföllum vegna spillingar og ekkert bendir til að breytinga sé að vænta.Meðan þetta ástand varir á landinu mínu mun ég láta rödd mína heyrast hvar sem ég kem því við

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

Fyrsta færslan

31. ágúst 2010 · Engin ummæli

Velkominn í bloggið þitt á Blogg.is. Þetta er fyrsta færslan þín sem þú getur breytt (eða eytt). Byrjaðu að blogga!

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað